Superoxíð jónir eru svokölluð sindurefni sem skaða líkama okkar. Ein helsta vörn okkar gegn þessum sindurefnum er með ensími sem kallast superoxide disputase (SOD). SOD er andoxunarefni sem breytir superoxide jónum í súrefni og vetnisperoxíð. Fyrir nokkrum árum síðan komst hópur franskra vísindamanna, undir stjórn Nóbelsverðlaunahafans dr. Luc Montagnier, að því að ein tegund cantalópu melónu inniheldur mikið af þessu SOD efni. Vandinn var að magasýrurnar brutu niður ensímið í meltingarkerfinu. Þeir þurftu að finna leið til þess að vernda SOD fyrir magasýrunum og vöfðu því inní fína hveitiþræði. Þrátt fyrir að SOD efnið sé enn brotið niður í meltingarkerfinu, virkar það nú til að hvetja líkamann til að framleiða meira af andoxunarefninu SOD.
