Akurmynta (Mentha longifolia) eykur flæði galls til magans og róar vöðvana í meltingarveginum.
Argan Olía (Argania spinosa) vinnur gegn sindurefnum og nærir húðina.
Asfoetia (Ferula Assafoetida) viðheldur góðri blóðrás.
Dúnepli (Eriobotrya japonica) hjálpar líkamanum að vinna gegn sindurefnum í blóðinu.
Hálsurt (Inula helenium) hjálpar til við að jafna framleiðslu á olíu í húðinni.
Jóhannesarjurt (Hypericum perforatum) róar kláða og roða.
Kamilla (Chamomilla recutita) róar húðina.
Kapra ber (Capparis spinosa) hjálpa líkamanum að vinna gegn sindurefnum.
Klettasalat (Eruca sativa) aðstoðar húðfrumurnar við að skipta sér á venjulegum hraða.
Kúmen (Cuminum cyminum) auðveldar meltingu.
Maríustakkur (Alchemilla vulgaris) aðstoðar við að halda heilbrigðri matarlyst og líkamsþyngd.
Melóna (Cantalupensis Naud) Cantalópu melónur eru fullar af andoxunarefni sem kallast superoside dismutase (SOD) sem getur hjálpað líkamanum að vinna gegn sindurefnum.
Músaþorn (Ruscus aculeatus) hjálpar húðinni að framleiða kollagen (aðalstuðningspróteinið í húðinni).
Netla (Urtica dioica) aðstoðar við að viðhalda heilbrigðu sykurmagni í blóði.
Ólífulaufblöð (Olea europaea) hjálpa okkur að viðhalda eðlilegum efnaskiptum í líkamanum.
Salt bush (Atriplex halimus) viðheldur heilbrigðu sykurmagni í blóði.
Sápujurt (Saponara officinalis) hjálpar líkama okkar að halda sér hreinum.
Sítróna (Citrus medica limonum) hjálpar húðinni að lækna sig.
Svart kúmen (Nigella sativa) nærir og verndar húðina gegn ertingu.
Valhneta (Juglans regia) hjálpar líkamanum að viðhalda heilsusamlegu blóðsykursmagni.